Meðal efnis í fréttabréfinu að þessu sinni er boðskort og dagskrá Grænfánaráðstefnunnar „Ekki lengur grænjaxlar: Hvert nú?“.
Stiklað er á stóru um starfið í vetur og sagt frá því að Grunnskólinn á Hvanneyri hlaut nýverið sinn áttunda fána. Einnig má geta þess að allir skólarnir í Grindavík eru Grænfánaskólar. Lesa má nánar um þetta í fréttabréfi Skóla á grænni grein.