Katrín Magnúsdóttir er sérfræðingur Skóla á grænni grein
Katrín er í 40% starfshlutfalli.
Katrín er líffræðingur að mennt og með M.A. gráðu í mannfræði með áherslu á umhverfis- og þróunarfræði. Hún hefur einnig lokið diplómanámi í kennslufræðum og viðbótarnámskeiðum í menntun til sjálfbærni.
Katrín hefur sinnt ýmsum störfum í gegnum tíðina. Hún hefur m.a. starfað sem verkefnis- og tómstundastjóri hjá Nordjobb á Íslandi, raungreinakennari hjá Verzlunarskóla Íslands og forstöðumaður Sessljuhús umhverfis- og fræðsluseturs á Sólheimum. Auk þess var hún starfsnemi hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Namibíu og kenndi um tíma við alþjóðlegan heimavistarskóla í Kenýa.