Heitt, heitara, heitast!
Það styttist í COP 28, næstu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Landvernd stendur fyrir viðburði þar sem farið verður yfir kröfur umhverfisverndarsamtaka fyrir COP 28.
Viðburðurinn fer fram í Lögbergi, stofu 103 – miðvikudaginn 22. nóvember frá 17-18:30.
Hverjar eru kröfur umhverfisverndarsamtaka fyrir COP28?
Stendur Ísland við alþjóðlegar skuldbindingar sínar í loftslagsmálum?
Erindi og pallborð
- Stella Samúelsdóttir, Framkvæmdastýra UN Women á Íslandi
- Guðmundur Steingrímsson, fulltrúi Landverndar á COP28
- Ida Karolina Harris fyrir Unga umhverfissinna
- Árni Finnson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands
- Marissa Sigrún Pinal leiðir okkur í gegnum óvæntan gjörning.
Á fundinum gefst tækifæri til að taka þátt í umræðum og láta skoðun sína í ljós varðand COP28.
Fundarstjóri verður Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar.
Eftir fundinn verður haldið á Stúdentakjallarann.
Öll hjartanlega velkomin.