Þriðja tölublað Kríunnar, blað um umhverfi og náttúru, er komið út. Blaðið, sem er 16. síður, er sent félögum í Fuglaverndarfélaginu og Landvernd og þátttakendum í Vistvernd í verki.
Í Kríunni er m.a. viðtal við siðfræðinginn Peter Singer og Sveinbjörn Björnsson formann verkefnisstjórnar Ramma-áæltunar. Þá greinir Friðrik Sophusson frá viðhorfum sínum til náttúruverndar. Fyrir fulgaáhugamenn er sérstök myndrík grein um nýjar tegundir sem hafa verið finna sér bústað á Íslandi undanfarin ár. Forsíðumynd Kríunnar er úr Héðinsfirði og í blaðinu er fjallað um leiðir til að meta verðmæti þess að vernda og viðhalda slíkum stöðum.
Ritstjóri Kríunnar er Svavar Knútur Kristinsson. Senda má efni í næstu Kríu, sem kemur í febrúar 2004, á netfangið: krian@landvernd.is.