Landvernd kærir framkvæmdir við Hoffellslón og styður kæru Skaftfellinga

Landvernd kærir ákvörðun bæjarstjórnar Hornafjarðar vegna framkvæmdarleyfis sem var samþykkt á svæði við Hoffellslón.

Áform eru uppi um 10.000 fermetra baðlón og ferðamannastað við sporð Hoffellsjökuls upp að Hoffellslóni. Slíkar stórframkvæmdir munu reyna á þolmörkin við enn eina náttúruperlu landsins. Áætlað svæði er rétt við mörk Vatnajökulsþjóðgarðs.  Ekki hefur verið talið sjálfsagt að færa aðkomu að  náttúruperlum í hendur einstakra fyrirtækja, hvað þá að leyfa þeim inngrip  í náttúru og lokanir vegna einkanota. Slík inngrip ganga gegn hugmyndum fólks um friðuð svæði, enda vill fólk sjá náttúruleg svæði án inngripa mannsins og án mannvirkja. Landvernd telur að framkvæmdin muni brjóta gegn lögum um náttúruvernd og fara gegn samþykktri stjórnunar- og verndaráætlun á svæðinu:

„Við jaðra skriðjökla er óheimilt að valda skemmdum á viðkvæmum jökuluminjum og spilla ásýnd við jaðra skriðjökla, til dæmis við lagningu vega, göngustíga og annarra mannvirkja samkvæmt áætluninni“

Svæðið umhverfis Hoffellsjökul hefur verið skráð í C-hluta náttúruminjaskrár og Aðalskipulag Hornafjarðar hefur tilgreint þetta svæði sem eitt af svæðum á náttúruminjaskrá í sveitinni.

Meta þarf verndargildi svæðisins ofar öðru og Landvernd telur 10.000 fermetra baðlón ganga gegn verndargildi svæðisins.

Kæra í Skaftafelli

Á sama tíma styður Landvernd kæru íbúa í Skaftafelli vegna byggingar þrettán gistihúsa í Skaftafelli í Öræfum, en húsin eru lýti í náttúrunni og hafa veruleg og varanleg áhrif á náttúruna og upplifunargildi í og við Vatnajökulsþjóðgarð. Framkvæmdirnar vöktu sterk viðbrögð í lok síðasta árs þar sem undirskriftasöfnun hófst til að mótmæla byggingu smáhýsanna sem ætlað er að verða sjötíu talsins. Svæðið flokkast sem grannsvæði Vatnajökulsþjóðgarðs og verður því að leita umsagnar Náttúrverndarstofnunar áður en leyfi er veitt.

“Náttúruverndarstofnun leggur áherslu á að ákvæði aðalskipulags tryggi að fyrirhuguð landnotkun, mannvirkjagerð eða önnur leyfisskyld framkvæmd í grennd við þjóðgarðinn og friðlýst svæði sé metin með hliðsjón af þessu ákvæði laganna, og að viðeigandi skilyrði séu sett til að forða spjöllum á verndargildi svæðanna.“

Kærendur krefjast þess að framkvæmdir verði stöðvaðar.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd