Landvernd og Listasafn Íslands í samstarfi – sýnileiki umhverfisfréttafólks

Safnahúsið
Landvernd og Listasafn Íslands hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf sín á milli. Samstarfið felur í sér að efla tengsl myndlistar við umhverfismenntun.

Landvernd og Listasafn Íslands hafa skrifað undir vilja yfirlýsingu um samstarf sín á milli. Samstarfið felur í sér að efla tengsl myndlistar við umhverfismenntun. Áhersla er lögð á sýnileika verka eftir börn og ungt fólk í tengslum við miðlun umhverfismála.

Sýning á barnamenningarhátíð

Fyrsta afurð samstarfsins verður sýning Umhverfisfréttafólks á Barnamenningarhátíð sem hefst þriðjudaginn 5. apríl næstkomandi. Þar munu nemendur frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla sýna ljósmyndir sínar og markmið þeirra. Ljósmyndirnar voru unnar með Jeannette Castioni í samvinnu við Landvernd. Sýningin verður haldin í Safnahúsinu.

Uppskeruhátíð Umhverfisfréttafólks

Þá verður uppskeruhátíð Umhverfisfréttafólks haldin í Safnahúsinu þann 6. maí næstkomandi. Þar verður tilkynnt hver hlýtur verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í verkefninu og varpað ljósi á verk ungs umhverfisfréttafólks. Fjölmargir skólar víðsvegar um landið taka þátt í verkefninu og verður viðburðurinn bæði haldinn á staðnum og í streymi. Þannig tryggjum við aðgengi skóla um landið að uppskeruhátíðinni.

Ungt umhverfisfréttafólk skapar ungmennum vettvang til þess að takast á við umhverfismálin, fjalla um þau, finna lausnir og miðla upplýsingum til annarra. Landvernd rekur verkefnið á Íslandi og gefst nemendum á unglingastigi í grunnskóla og framhaldsskóla kostur á því að taka þátt.

Safnahúsið námsvettvangur grænfánaskóla

Safnahúsið verður að auki nýtt sem námsvettvangur í tengslum við ýmis menntaverkefni Landverndar.

„Von okkar er sú að samstarfið muni auka sýnileika á verkum ungs fólks, en þau eru mörg hver að gera frábæra hluti í umhverfismálum og verkin þeirra eru mjög áhrifarík. Þá er kostur við samstarfið að við getum aukið meðvitund ungs fólks á skemmtilegum og fróðlegum sýningum í Listasafni Íslands“ – segir Vigdís Fríða, verkefnastjóri Ungs umhverfisfréttafólks um samstarfið.

Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar og Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands.
Mynd tekin að gefnu tilefni. Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar og Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands standa þarna fremst og bakvið þær eru starfsmenn Landverndar og Listasafns Íslands.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd