Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands, óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til starfa.
Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem brennur fyrir náttúru- og umhverfisvernd. Framkvæmdastjóri er málsvari samtakanna og ber ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið
- Daglegur rekstur og stjórnun samtakanna.
- Umsjón með gerð umsagna og álitsgerða.
- Virk þátttaka í stefnumótun og innleiðingu stefnu.
- Þátttaka í fræðslu, fjáröflun og daglegri starfsemi.
- Regluleg samskipti við fjölmiðla og hagaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Umfangsmikil þekking á umhverfismálum og náttúruvernd.
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi.
- Leiðtoga-, samskipta- og skipulagshæfileikar.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Framtíðarsýn, frumkvæði, drifkraftur og metnaður.
Umsóknarfrestur er til og með 28. janúar 2018.