„Bláfáninn er hvatning til okkar um að halda áfram á sömu braut og hafa umhverfismál í forgangi„ sagði Magnea Guðmundsdóttir kynningarstjóri Bláa Lónsins þegar Bláfáninn var dreginn að húni í Bláa Lóninu í tíunda sinn nú fyrir skömmu.
Bláfáninn er alþjóðleg viðurkenning sem veitt er til að stuðla að verndun umhverfis smábátahafna og baðstranda. Landvernd hefur verið fulltrúi verkefnisins á Íslandi frá árinu 2003. Bláfáninn er nú orðinn útbreiddasta viðurkenning sinnar tegundar í heiminum og á þessu ári flagga 3850 staðir fánanum í 46 löndum.
Meginmarkmið Bláfánaverkefnisins er bætt umhverfisstjórnun, góð hreinlætisaðstaða, gæði vatns, gott aðgengi að upplýsingum um þjónustu á viðkomandi svæði og slysavarnir. Bláfáninn er fyrst og fremst tákn um góða frammistöðu í umhverfismálum og staðfesting á umhverfisgæðum þeirra staða þar sem hann blaktir við hún.
Sjá fréttatilkynningu á Vísír.is
“