Lifandi náttúra – Lífbreytileiki á tækniöld hlýtur verðlaun

Lifandi náttúra, lífbreytileiki á tækniöld.
Lifandi náttúra - lífbreytileiki á tækniöld hlaut á dögunum evrópsk nýsköpunarverðlaun kennara. Lifandi náttúra er verkefnasafn ætlað leikskólum og yngsta stigi grunnskóla. Verkefnin snúa að ræktun, lífbreytileika og henta útinámi vel.

Lifandi náttúra – Lífbreytileiki á tækniöld er safn verkefna sem tengjast á einhvern hátt lífbreytileika (líffræðilegri fjölbreytni). Unnið er með viðfangsefnið á fjölbreyttan máta þar sem hvert verkefni getur verið sjálfstætt verkefni eða hluti af stærri heild.  Í verkefninu tóku þátt 11 Grænfánaskólar, leik – og grunnskólar. Skólarnir eru:

Akrasel

Drafnarsteinn

Flóaskóli

Hvolsskóli

Krakkaborg

Leikholt

Skýjaborg

Stórutjarnarskóli

Þelamerkurskóli

Þjórsárskóli

Tjarnarsel

Þátttökulönd í verkefninu voru auk Íslands; Eistland, Lettland og Slóvenía.

Hér má sjá umfjöllun um verkefnið

Lífbreytileiki með ungum nemendum

Verkefni í rafbókinni er ætluð nemendum á yngsta stigi grunnskóla en einnig er hægt að nýta hana í eldri hópum leikskóla. Bókin skiptist í fimm kafla, fyrstu tveir kaflarnir henta yngri nemendum á yngsta stigi og kaflar þrjú og fjögur henta eldri nemendum á því sviði. Í fimmta kafla eru stærri verkefni sem taka lengri tíma. 

Hob's adventures er samvinnuverkefni kennara frá fjórum löndum, Íslandi, Slóveníu, Lettlandi og Eistlandi. Landvernd fer með umsjón verkefnisins á Íslandi

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd