Hvatningarátak Landverndar og Grænfánans
Nægjusamur nóvember
Hvað er nægjusamur nóvember?
Nóvember er einn neysluríkasti mánuður ársins með sínum svarta föstudegi, netmánudegi og degi einhleypra. Nægjusamur nóvember er hvatningarátak. Mótsvar við neysluhyggju og hugmyndinni um að okkur vanti stöðugt eitthvað.
Í nóvember ætlum við að tileinka okkur nægjusemi og hvetjum sem flest að vera með!
Þessi vefur mun taka breytingum því lengra sem líður á mánuðinn. Hér munu birtast upplýsingar um viðburði, greinaskrif, fræðslu og fleira.
Dagatal Nægjusams Nóvember
Fylgstu með Nægjusömum Nóvember á TIKTOK !
@LANDVERND
Nægjusemi er
Jákvæð
Þau sem lifa nægjusömu lífi fá sjaldan þá tilfinningu að þau skorti eitthvað, því nægjusemi er hugsunarháttur allsnægta.
Auðveld
Við njótum lífsins núna og eyðum ekki orku í að hugsa um að allt verði betra þegar við náum að eignast ákveðna hluti í framtíðinni.
Valdeflandi
Nægjusemi er eitt af því öflugasta sem við sem einstaklingar geta gert til þess að minnka vistsporið okkar.
Nauðsynleg
Við göngum minna á náttúruna og á rétt núverandi og komandi kynslóða á góðu lifi.
Greinar um nægjusaman nóvember
Nægjusemi sem mikilvægt gildi fyrir alla
Ímyndaðu þér líf þar sem þú upplifir þakklæti, gleði, hamingju, rósemd og sátt. Ef þú hefur tileinkað þér nægjusemi er líklegt að þú upplifir einmitt þessar tilfinningar. Ímyndaðu þér síðan hvaða áhrif nægjusemin hefði á samfélagið í heild. Lestu meira hér
Hugleiðingar Þorgerðar Maríu formanns Landverndar um nægjusemi. Þorgerður fjallar um áhrif tilboðsdaga á hegðun og líðan, líklega eitthvað sem margir kannast við.
Greinina má lesa hér
Hvatning, taktu þátt í nægjusömum nóvember
Grein Guðrúnar Schmidt um neyslu og nægjusemi. Neyslumöguleikar okkar í dag virðast nær takmarkalausir og aðallega háðir efnum en ekki þörf. það þarf að endurstilla neyslumenningu okkar.
Greinina má lesa hér
Veljum nægjusemi, ekki bara í nóvember heldur gerum hana að lífsstíl okkar alla daga.
Landvernd og Grænfáninn þakkar samstarfsaðilum og almenningi fyrir góðar undirtektir. Við mætum sterk til leiks að ári og höldum áfram að minna á nægjusemina! Lestu lokagrein átaksins 2023 hér
Rannsóknir sýna að þessi fimm atriði sem skipta hvað mestu máli fyrir vellíðan okkar. Lestu meira hér
Leikir og hugvekjur
Við höfum tekið saman ýmsa leiki og hugvekjur fyrir Nægjusaman nóvember sem er kjörið að fara með á vinnustaðinn, í saumaklúbbinn, vinahópinn eða í kennslustofuna.
Viðtöl
Hefðin „er að fara úr böndunum“
Guðrún Schmidt segir hefðina sem myndast hefur í kringum jóladagatöl vera að fara úr böndunum. Þörf er á hugarfarsbreytingu en vel er hægt að stytta biðina eftir jólunum með nægjusamari hætti. Viðtalið má finna hér
Gætir þú verið með hlutaveiki?
Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar fræddi hlustendur Bítisins um Nægjusaman nóvember. Viðtalið má finna hér
„Prógrammerað í mann að kaupa hluti til að gera vel við sig“
Þorgerður María formaður Landverndar mælir með því að vera með lista yfir það sem manni vantar. Ef það er ekki á listanum þá þarf ekki að kaupa það. Viðtalið má finna hér
Nægjusamur nóvember – mótsvar Landverndar við neysluhyggju
Viðtal við Guðrúnu Schmidt um m.a. ástæðu þess að Landvernd stendur fyrir hvatningarátakinu Nægjusamur nóvember. Viðtalið má lesa hér
Samstarfsaðilar
Nægjusamur nóvember er hvatningarátak Landverndar og Grænfánaskóla í samstarfi við Norræna húsið og Saman gegn sóun.



