Náttúruverndarsamtök fagna niðurstöðu Hæstaréttar um Hvammsvirkjun

Tilkynning: Dómur Hæstaréttar um Hvammsvirkjun

 

Náttúruverndarsamtök fagna niðurstöðu Hæstaréttar sem staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms og felldi endanlega úr gildi virkjanaleyfi fyrir Hvammsvirkjun, í máli sem landeigendur við Þjórsá höfðuðu gegn ríkinu og Landsvirkjun, fyrirtækis í eigu þjóðarinnar.

 

Þetta er mikill sigur fyrir náttúru og lífríki Þjórsár og við teljum þjóðina standa í þakkarskuld við landeigendur sem lögðu af stað í þennan leiðangur gegn ofurefli Landsvirkjunar og stjórnvalda. Hér má segja að Davíð hafi lagt Golíat í baráttu sem staðið hefur yfir í aldarfjórðung.

 

Þetta er í þriðja skiptið sem virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar er fellt úr gildi; fyrst með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í júní 2023, þá með dómi héraðsdóms í janúar á þessu ári og loks dómi Hæstaréttar í dag. Það er mikill áfellisdómur yfir stórvirkjanastefnu stjórnvalda og Landsvirkjunar, og stjórnsýslunni allri, að virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar hafi ítrekað verið fellt úr gildi. Verra er að Landsvirkjun og stjórnvöld virða þær niðurstöður ekki.

 

Afar mikilvægt er að dómur æðsta dómstigs verði virtur og öllum framkvæmdum við ána, sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði vegna Hvammsvirkjunar verði tafarlaust hætt enda ótækt að unnið sé í stórvirkjun með óafturkræfum náttúruspjöllum og óheyrilegum tilkostnaði af almannafé. Fyrirséð er að leyfi sveitarfélaga verði nú felld úr gildi þegar ekkert er virkjunarleyfið.

 

Fyrstu viðbrögð umhverfisráðherra og forstjóra Landsvirkjunar, sem segja að haldið verði áfram óháð úrskurði Hæstaréttar og sótt um nýtt leyfi í krafti nýrrar löggjafar, eru fyrirsjáanleg. Þau sýna náttúru, samfélagi og dómi Hæstaréttar vanvirðingu.

 

Þorgerður María Þorbjarnardóttir, Landvernd

Snæbjörn Guðmundsson, Náttúrugriðum

Árni Finnsson, Náttúruverndarsamtökum Íslands

Elvar Örn Friðriksson, NASF á Íslandi

Laura Sólveig Lefort Scheefer, Ungum umhverfissinnum

Sigþrúður Jónsdóttir, Vinum Þjórsárvera

Soffía Sigurðardóttir, Náttúruverndarsamtökum Suðurlands

 

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd