Nýársfögnuður Landverndar 2026

Kæri velunnari Landverndar,

Takk fyrir samstarfið, samveruna og stuðninginn á liðnu ári. Árið 2025 var verulega viðburðaríkt og viljum við nýta tækifærið sem nýjá árið gefur okkur til þess að fagna með ykkur öllum að nú sé að hefjast nýtt ár með von og nýjum tækifærum. Því blásum við til magnaðrar veislu og byrjum árið með krafti. 

Staðsetningin er ekki af verri endanum því við bjóðum gestum í hátíðlega upplifun í Flyover-Iceland!

Veislan byrjar klukkan 18:00 fimmtudaginn 22. janúar. og endar klukkan 20:00

Gestir fá léttar veitingar, ljúfar stundir, gott náttúruspjall, skemmtiatriði og flugferðir yfir okkar dýrmætu náttúru.

 

Skráningin gekk einstaklega vel og til að passa upp á öryggi gesta má ekki yfirfylla rýmið!

En hér getur þú skráð þig á Biðlista 

Þá færð þú tölvupóst með staðfestingu ef þú kemst inn svo mundu að skrá netfangið rétt. 

Biðlisti

 

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd