Á sumardaginn fyrsta átti Landverndarfólk góða stund á Bessastöðum þar sem Guðni forseti bauð fólk velkomið með kaffi og kleinum. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, nýr formaður Landverndar, afhenti Guðna ársrit Landverndar en þar má sjá skýrslu um starfsemina á síðasta starfsári.
Síðan lá leiðin út á Bessastaðanes. Þar var hugað að fuglum og gróðri og sagðar sögur af svæðinu. Sérhver arða af rusli var tínd og stærri hlutir einnig fjarlægðir.
Heimsóknin var sannarlega góð byrjun á nýju sumri – sem vonandi reynist okkur öllum gott og farsælt.