Rammaáætlun í ljósi reynslunnar

Í náttúru Íslands er margs konar auð að finna. Ásókn í þessar auðlindir af hálfu ýmissa hópa er mikil og vaxandi. Oft skarast hagsmunir þessara hópa og hefur það leitt til ágreinings um nýtingu landsins. Rammaáætlun er verkfæri til að greiða úr þessum ágreiningi, og jafnframt samheiti yfir ákveðin lög, ferli og aðferðafræði sem hafa þróast samstíga gegnum tíðina til þess að leysa þetta verkefni á sem farsælastan hátt.

Nú hafa hagsmunasamtök, náttúruverndarsinnar, rannsakendur og fagaðilar rammaáætlunar lýst yfir áhyggjum tengdum því að ítrekað hefur verið farið gegn ráðleggingum Rammaáætlunar. Þá skjóta upp kollinum spurningar á við: Er rammaáætlun að þjóna tilgangi sínum? Eru niðurstöðurnar svona auðhunsaðar? Hvað þarf að bæta?

Laugardaginn 18. október, klukkan 13:00, stendur Landvernd fyrir viðburðinum “Rammaáætlun í ljósi reynslunnar” ásamt fleiri náttúruverndarasamtökum. Fundurinn verður haldinn í Veröld húsi Vigdísar á Háskólasvæðinu. Þar verða fræðsluerindi, pallborð og mikilvæg málefni á dagskrá.

Gestir eru beðnir um að skrá sig hér á viðburðinum en þar er hægt að sjá drög að dagskrá. 

Einnig viljum við benda á að myndin Bóndinn og verksmiðjan verður sýnd í Bíó Paradís klukkan 17:00 að fundi loknum og hvetjum við áhugsöm að kíkja á hana.

 

Urriðafoss er einn vatnsmesti foss landsins. Við endurskoðun 3. áfanga rammaáætlunar er lagt er til að hann fari í nýtingarflokk.
Tugir vindorkuvera eru á teikniborðinu hérlendis.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd