Síðasti naglinn í borginni

Esjan á góðum degi. Veljum naglalaus vetrardekk í Reykjavík í vetur.
Landvernd og Reykjavíkurborg taka höndum saman í átaki gegn nöglum á götum borgarinnar. Bíll á negldum dekkjum veldur margfalt meiri mengun en bíll á ónegldum vetrardekkjum. Úrval ónegldra vetrardekkja verður sífellt betra og fá mörg þeirra góða umsögn og háa einkunn.

Nú marrar í malbikinu undan nöglum vetrardekkja, í níu stiga hita í nóvember. Yfir Esjunni svífur ekki lengur sólroðið ský, heldur brúnleitt mengunarský af svifrykinu sem nagladekkin losa af götunum.

Margar leiðir eru færar til að losna við þennan ófögnuð, sem ógnar heilsu borgarbúa, loftslaginu og umhverfinu öllu. Nokkur dekkjaverkstæði fullyrða að betri lausnir finnist nú í annarskonar vetrardekkjum en þeim gamaldags negldu dekkjum sem við mörg erum vönust.

Bíll á nöglum mengar allt að 40 sinnum meira en bíll sem ekki er á nöglum. Það er sinnum, ekki 20-40% meira heldur 2000% meira.

Þrátt fyrir að nú sé vetur, hálka líkleg í efri byggðum á morgnana, Hellisheiðin varasöm og hálka í roki á Kjalarnesinu, þá finnast margar ólíkar leiðir til að forðast nagladekkin sem líka eru skaðleg. Það er ekki sjálfgefið að aka á nöglum þótt almanakið leyfi það frá 1. nóvember til 15. apríl.

Sífellt betri naglalaus dekk eru í boði, vetrardekkjakönnun 2024 sem FÍB hefur birt staðfestir það. Þar fá valin naglalaus dekk mjög góða umsögn og háa einkunn. Fyrir þá sem enn treysta á nagla þegar farið er um hála fjallvegi má benda á möguleikann á skammtímaleigu vetrardekkja sem hægt er að nýta fyrir stakar ferðir.

Landvernd og Reykjavíkurborg taka nú höndum saman í átaki gegn nöglum á götum borgarinnar. Við hvetjum fólk til að taka upplýsta ákvörðun áður en nagladekkin eru sett undir. Að fólk kynni sér aðra kosti og reyni í lengstu lög að komast hjá því að spæna upp malbikið. Því það er skaðlegt á svo margan hátt. Það er dýrt, það er veldur loftmengun, ertingu í öndunarvegum og er heilsuspillandi.

Nagladekk skila ekki meira öryggi en góð, vönduð og margprófuð naglalaus vetrardekk.

Nagladekk eru ekki aðeins slæm fyrir loftgæðin á höfuðborgarsvæðinu heldur skapa þau hávaða og kostnaður við viðhald gatna hækkar. Skemmdir í malbiki draga líka verulega úr viðunandi akstursskilyrðum. Naglar í dekkjum hjálpa til dæmis ekki til við akstur í snjó heldur aðeins við ákveðin skilyrði við ísingu á götum.

Hlutfallið milli negldra og ónegldra dekkja í janúar 2024 var þannig að 40,3% ökutækja voru á negldum dekkjum í Reykjavík. Þetta er alltof há tala á svæði þar sem vetrarþjónusta gatna er góð og hægt að nýta almenningssamgöngur til að fara á milli staða.

Nú sem aldrei fyrr er ástæða til að velja góð vetrardekk og sleppa nöglunum.

Gerum þetta saman – loftgæði eru lífsgæði! Aðrir og betri hjólbarðar eru þegar á markmiði og nefna má að innviðir fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur hafa stórbatnað á höfuðborgarsvæðinu.

Höfundar starfa hjá Landvernd og Reykjavíkurborg.

Greinin birtist fyrst 8. nóvember á Vísi

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd