Minningarorð um Skarphéðin G. Þórisson

Skarphéðinn G. Þórisson var einn af máttarstólpum íslenskrar náttúruverndar. Hann lést af slysförum sunnudaginn 9. júlí.

Góður liðsmaður og félagi Skarphéðinn G. Þórisson líffræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands er fallinn frá. Skarphéðinn var einn þeirra sem létust í hörmulegu flugslysi við Sauðahnjúka sunnudaginn 9. júlí. 

Skarphéðinn var einn af máttarstólpum íslenskrar náttúruverndar og sat í stjórn Náttúruverndarsamtaka Austurlands um langt árabil. Þar vann hann mikið starf af hugsjóninni einni með góðum félögum, einnig átti hann sæti í faghópi 2 v/rammaáætlunar og kom víðar við á þessu sviði.

Landvernd naut góðs af verkum og fagmennsku Skarphéðins hvort þá heldur þurfti að leita í hans viskubrunn eða gríðarmikið myndasafn. Fullyrða má að enginn einstaklingur hafi búið yfir jafn mikilli þekkingu á lifnaðarháttum hreindýra á Íslandi og Skarphéðinn. Auk þess átti hann stórfenglegt safn hreindýramynda, enda var hann frábær ljósmyndari. Myndir hans hafa meðal annars um langt skeið prýtt veggi flugstöðvarinnar á Egilsstöðum, farþegum og gestum til yndisauka. Þá hafa myndir frá Skarphéðni einnig skreytt náttúrutengdar sýningar um land allt, stórar sem smáar.

Meðal margra verkefna Skarphéðins var eftirlit með hreindýrum af hálfu Náttúrustofu Austurlands. Hann var einmitt í slíkri ferð yfir búsvæði þeirra þegar hið hörmulega slys átti sér stað.

Skarphéðinn var einstakt ljúfmenni, djúpvitur og sérstaklega vel að sér um alla náttúru og dýralíf.

Um leið og Landvernd vill þakka Skarphéðni allt hans ómetanlega framlag til náttúruverndar í landinu sem og samstarf, vottum við aðstandendum öllum okkar dýpstu samúð.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd