Landvernd er frjáls félagasamtök sem treystir á stuðning náttúruunnenda til að geta staðið vörð um náttúru Íslands. En Landvernd er líka almannaheillafélag og þess vegna geta þeir sem styrkja Landvernd með mánaðarlegum greiðslum eða stökum styrkjum fengið skattaafslátt. Bæði einstaklingar og fyrirtæki geta fengið afsláttinn. Landvernd sér um að koma upplýsingum til skattsins, þær birtast sjálfkrafa á rafrænu framtali hvers árs.
Dæmi:
- Einstaklingur í mið-skattþrepi styrkir Landvernd mánaðarlega um 2.000 krónur. Hann fær skattafslátt og greiðir í raun aðeins 1.241 kr. á mánuði.
- Fyrirtæki sem styrkir Landvernd um 500.000 krónur á ári lækkar tekjuskattinn um 100.000 kr.
Dæmin að ofan miðast við meðal-skattþrep einstaklings og 20% skattprósentu fyrirtækis, sjá reglur skattsins.
Til þess að hægt sé að nýta sér skattaafsláttinn þurfa heildar framlög einstaklings að vera að minnsta kosti 10.000 krónur á árinu (þeim má þó dreifa á milli almannaheillafélaga). Skattaafslátturinn er í formi frádráttar frá tekjuskattstofni að hámarki 350.000 hjá einstaklingi og 700.000 hjá hjónum.
Fyrirtæki geta nýtt skattaafsláttinn fyrir styrki sem nema allt að 1,5% af tekjuskattstofni.
Til að nýta skattaafsláttinn getur þú gerst félagi í Landvernd eða styrkt okkur á annan hátt.
Ef þú vilt frekari upplýsingar, endilega sendu okkur línu á landvernd@landvernd.is.