Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur kveðið upp bráðabirgðaúrskurð um stöðvun framkvæmda við Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4 innan deiliskipulagssvæðis Þeistareykja þangað til úrskurðarnefnd hefur tekið fyrir kæru Landverndar á framkvæmdaleyfi Þingeyjarsveitar. Bætist þessi úrskurður við bráðabirgðaúrskurð nefndarinnar vegna Kröflulínu 4 innan Skútustaðahrepps. Með þessum úrskurðum hefur náttúruverndargildi Þeistareykjahrauns og Leirhnjúkshrauns verið viðurkennt og Landsneti er óheimilt að framkvæma í haununum.
Krafa Landverndar hefur verið að umhverfismeta beri fleiri valkosti en loftlínu frá Kröflu að Bakka svo draga megi úr umhverfisáhrifum. Skoða þarf bæði jarðstrengi og loftlínur og valkosti sem sneiða hjá verðmætum hraunum eins og Leirhnjúkshrauni og Þeistareykjahrauni. Núverandi umhverfismat er úrelt og tekur ekki til slíkra valkosta. Aðeins með nýju umhverfismati fæst raunhæfur samanburður um hvaða leiðir valda minnstum umhverfisáhrifum. Nýtt umhverfismat er því grundvallarkrafa.
Lesa bráðabirgðaúrskurð um stöðvun framkvæmda við Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4.