Sumardagskrá í Alviðru: Lífríkið í fersku vatni 19. júní 2021

Rennandi lækur. Lífríkið í fersku vatni í Alviðru þann 19. júní 2021.
Lærðu um lífríkið í fersku vatni í Alviðru. Ragnhildur Guðmundsdóttir líffræðingur fræðir gesti og gangandi um lífríkið í fersku vatni laugardaginn 19. júní kl. 14-16.

Laugardaginn 19. júní kl. 14-16 fræðir Ragnhildur Guðmundsdóttir líffræðingur gesti og gangandi um lífríkið í fersku vatni í Alviðru, fræðslusetri Landverndar. 

Alviðra fræðslusetur Landverndar stendur í sumar fyrir metnaðarfullri og áhugaverðri sumardagskrá fyrir gesti og gangandi. Alviðra á í góðu samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands um dagskránna, en þessar stofnanir leggja sumardagskrá Alviðru til sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum.

Alviðra er í Ölfusi, stendur undir Ingólfsfjalli, gegnt Þrastalundi.

Þátttaka er gjaldfrjáls og öllum opin. Sjá á korti 

Verið velkomin.

  

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd