Sumardagskrá í Alviðru: Ætihvönn til matar, litunar og heilsubótar, 14. ágúst 2021

Ætihvönn. Flugur sitja á blómum Ætihvannar.
Lærðu um ætihvönn til matar, litunar og heilsubótar. Eva Þorvaldsdóttir líffræðingur fræðir gesti og gangandi um ætihvönn laugardaginn 14. ágúst kl. 14-16.

Laugardaginn 14. ágúst kl. 14-16 fræðir Eva Þorvaldsdóttir líffræðingur og safnkennari hjá Náttúruminjasafni Íslands gesti og gangandi um ætihvönn. Fjallað verður um ætihvönn til matar, liturnar og heilsubótar í Alviðru, fræðslusetri Landverndar.

Sýnikennsla – Ætihvönn til matar og jurtalitunar

Ætihvönn var áður fyrr mikilvæg matjurt á Íslandi. Hún vex víða í landi Alviðru og þar verða laufblöð og stönglar skornir auk þess sem grafnar verða upp rætur. Í fræðsluhúsi Landverndar verður sýnikennsla um það hvernig má nota ætihvönn til matar og jurtalitunar.

Alviðra fræðslusetur Landverndar stendur í sumar fyrir metnaðarfullri og áhugaverðri sumardagskrá fyrir gesti og gangandi. Alviðra á í góðu samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands um dagskránna, en þessar stofnanir leggja sumardagskrá Alviðru til sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum.

Alviðra er í Ölfusi, stendur undir Ingólfsfjalli, gegnt Þrastalundi.

Þátttaka er gjaldfrjáls og öllum opin. Sjá á korti 

Verið velkomin.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd