Þorgerður er uppalin á Egilsstöðum og frá unga aldri hefur hún haft yndi af náttúru og náttúrufræðum. Hún er menntaður jarðfræðingur og hef einnig lokið leiðtoganámi til náttúruverndar við Háskólann í Cambridge.
Hún nýtir sér þekkingu á náttúru, á stjórnsýslu og góðri samskiptahæfni til þess að gæta hagsmuna náttúrunnar.
Í barnæsku upplifði hún það þegar Kárahnjúkavirkjun var byggð og hvernig það skipti samfélaginu í tvennt. Hún hefur unnið sem landvörður á austur hálendinu og ferðast reglulega um svæðið. Það er markmið hennar að gæta þess að slík eyðilegging endurtaki sig aldrei að standa vörð um bæði líffræðilega og jarðfræðilega fjölbreytni.