Vigdís Finnbogadóttir, verndari Landverndar, er 75 ára í dag 15. apríl 2005. Stjórn Landverndar óskar Vigdísi heilla og þakkar henni ómetanlegan stuðning við Landvernd.
Í tilefni af 75 ára afmælinu hefur stjórn Landverndar ákveðið að gróðursetja 75 bjarkir í Alviðru. Þessi tré munu mynda Vigdísarrjóður og verða skjól þeim börnum sem í framtíðinni munu sækja fræðslu og útvist í Alviðru.