– yfirlit yfir helstu hugmyndir um aðgerðir fram hafa komið á vettvangi Landverndar
Tillögur grasrótarhóps Landverndar í loftslagsmálum kynntar í desember 2019:
Setjum skýr markmið um að Íslandi verði jarðefnaeldsneytislaust árið 2035. Til þess að komast þangað þarf að feta sig áfram með markvissum hætti á næstu árum:
- 2020 Auka fjármagn í nýsköpun og þróun fyrir notkun hreinna orkugjafa í flugsamgöngum í samstarfi við grannþjóðir.
- 2023 Banna innflutning á bensín og dísilbílum.
- 2025 Banna innflutning vinnuvélum og tækjum sem ekki ganga fyrir hreinum orkugjöfum.
- 2025 Öll opinber framkvæmdasvæði noti eingöngu tæki sem ganga fyrir hreinum orkugjöfum.
- 2025 Jarðefnaeldsneytislausar almenningssamgöngur á landi.
- 2030 Fyrsta raffarþegaflug innanlands.
- 2030 Jarðefnaeldsneytislausar landssamgöngur.
- 2030 Jarðefnaeldsneytislausar sjósamgöngur.
- 2035 Jarðefnaeldsneytislaus fiskiskipafloti.
- 2035 Jarðefnaeldsneytislaust millilandaflugs.
Helstu áherslur sem Landvernd kom á framfæri í gegnum samráðsgátt varðandi aðgerðaráætlun í loftslagsmálum:
- Að í aðgerðaráætlun verði fleiri magnbundin og tímasett markmið í aðgerðaráætlun – markviss og sýnilegur árlegur árangur í samdrætti á losun.
- Að aðgerðaráætlunun nái til allra geira samfélagsins sem losa mikið af gróðurhúsalofttegundum
- Fjármagn til loftslagmála verða aukið til muna, fari úr 0,2% af vergri þjóðarframleiðslu upp í 1% á næsta ári.
- Skýr áform um kerfisbreytingar í aðgerðaráætlun um loftslagsmál þar sem lögð er áhersla á breyttar framleiðsluhefðir, breytt neyslu- og ferðamynstur, breytt viðskiptamódel og róttækt átak í fræðslumálum.
- Sterkari áhersla á fjölbreyttan ferðamáta með markmiðum um að hlutdeild (raf)hjólandi vegfarenda sé 8% yfir landið allt og 20% í stærri bæjum fyrir 2023.
- Tryggð fjármögnun í Borgarlínu.
- Innviðir fyrir hjólreiðar fái 10% af öllu fé sem veitt er til nýframkvæmda í samgöngum.
- Banka í meirihlutaeigu ríkisins þarf að skylda til að setja sér loftslagsvæna lánastefnu og hvetja þá til þess að hækka vexti á starfsemi sem losar mikið en lækka á móti vexti til þeirra sem losa minna.
- Setja reglur um loftslagsvænar fjárfestingar lífeyrissjóða og annarra sjóða.
Aðgerðir samþykktar á aðalfundi Landverndar 30.apríl 2019
- Kolefnisgjald – 10% af fjargjaldi hvers farþega með alþjóðaflugi og 3000 kr/farþega með skemmtiferðaskipi sem kemur til landsins. Skatturinn fari beint í verkefni um kolefnisbindingu eða þróun á loftlslagsvænum lausnum.
- Lífeyrissjóðir og aðrir stærri fjárfestingarsjóðir, skuldbindi sig til að allar fjárfestingar þeirra til næstu fimm ára standist markmið Parísarsáttmálans. Loftslagsvænar fjárfestingar (Paris proof fjárfestingar) verði skylda fyrir alla opinbera sjóði.
- Kolefnisgjald á bensín og dísil verði aukinn um 200% til 2021 og féið eyrnamerkt bættum almenningssamgöngum og öðrum vistvænum samgöngukostum eins og borgarlínu.
- Að sala á nýjum dísel og bensínbílum verði bönnuð frá 2023 og að bíleigendur verði hvattir til þess að breyta bílum sínum í metanbíla með nauðsynlegum hvötum.
- Að fyrirtæki þurfi fyrir 2022 að meta losun gróðurhúsalofttegunda frá starfseminni með viðurkenndum hugbúnaði og að þau greiði kolefnisgjald samkvæmt því. Kolefnisgjaldið renni til loftslagsverkefna eða til hækkunar persónuafsláttar.
- Að innlend matvælaframleiðsla stuðli að loftslagsvænni landnotkun og neyslu. Endurskipuleggja styrkjakerfi í landbúnaði þannig að bændur geti haft búsetu og atvinnu á býlum sínum en dregið verði úr framleiðslu dýraafurða um 40% til 2030 Framleiðsla á matvælum úr plöntum stórefld með framleiðslustyrkjum og dregið úr innflutningi.
- Að vistvænt skipulag verði haft að leiðarljósi í þéttbýlum og sveitarfélög skylduð til þess að meta loftslagsáhrif af sinni skipulagsgerð.
- Að gerðar verði mun strangari kröfur til stóriðju varðandi að draga úr sinni losun, t.d með því að nýta betri framleiðsluferli. Fyrirtæki í stóriðju verði skyldug til þess að kolefnisjafna sína losun þrátt fyrir að sú losun sé hluti af ETS kerfinu.
- Að allar bílaleigur verði skuldbundnar til þess að kaupa eingöngu inn vistvæna bíla frá 2022.
- Að notkun á hagvexti sem mælikvarða fyrir velsæld samfélagsins verði hætt og raunhæfari mælikvarðar teknir upp (eins og SPI).
- Aðgerðir sem fram komu á sérstökum afmælisfundi Landverndar laugardaginn 26. október 2019.
Almennt
- Hagkvæmni og sanngirni verði höfð að leiðarljósi við forgangsröðun á aðgerðum til að draga úr losun gróðurhúsaloftegundum (GHL). Jafnframt verði tekið mið af leiðbeiningum IPCC um fjárfestingaþörf sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu.
- Sighækkandi gjöld á losun GHL sem ná til allra geira samfélagsins: samgangna, stóriðju, urðunnar úrgangs, landbúnaðar og fiskveiða . Tekjum sem af þessu hljótast verði skilað aftur með jafnri almennri greiðslu til skattgreiðanda eða til fyrirtækja eftir þar til gerðum reglum.
Samgöngur
- Tryggja fjármagn í Borgarlínu og almennt að fjármagn í almenningssamgöngur verði stór aukið.
- GHL gjöld verði ekki felld niður þó veggjöld verði tekin upp.
- Gjöldum á innflutt bíla verði breytt enn frekar á þann veg að bílar sem nota hreina orkugjafa verði hagkvæmasti kosturinn en bílar sem eyða miklu bensíni eða dísel verði óhagkvæmastir í innkaupum. [Miða aðgerðir við að samsetning bílaflotans leiði til þess að árlegur samdráttur í losun frá einkabílum frá 2020 til 2030 verði a.m.k. 4%]
- Frekari uppbygging á hleðslustöðum haldi áfram, m.a. í samstarfi við bændur sem geti veitt slíka þjónustu.
- Aðgerðir sem leiði til þess að bílaleigur bjóði eingöngu upp á hreinorkubíla.
Annað
Komið verði á fjárhagslegum hvötum fyrir fyrirtækja að kolefnisjafna starfsemi sína og kröfur um kolefnisbókhald fyrirtækja verði hertar.
Fræðsla
- Fræðsla til almennings verði efld og stuðlað að valdeflingu almennings á þessu sviði. Gera tengingu lýðheilsu og umhverfismála skýrari.
- Vitundarvakning meðal almennings um að núverandi hagkerfi gangi ekki upp vegna neikvæðra áhrifa á umhverfi og lýðheilsu
- Styðja menntun kvenna í þróunarlöndum. Það dregur úr fólksfjölgun, eykur heilbrigði og bætir landnotkun.
Binding kolefnis
Tryggja að kolefnisjöfnun leiði ekki til skipulagslausrar skógræktar.