Ungt umhverfisfréttafólk frá Íslandi hefur áhrif í Evrópu!

Manneskja að bíta í jarðarís. Sigurvegari YRE 2021 Íris Lilja Jóhannsdóttir.

Íris Lilja Jóhannsdóttir vann í vikunni verðlaun fyrir ljósmyndina sína „Sæt tortíming“ í ljósmyndakeppni á vegum Umhverfisstofnunar Evrópu. 

Íris var sigurvegari Ungs umhverfisfréttafólks á Íslandi á framhaldsskólastigi árið 2021 og komst verkefnið hennar einnig í undanúrslit í alþjóðlegu keppni YRE (young reporters for the environment). Íris segist ennþá vera að meðtaka fréttirnar um sigurinn, en er himinánægð með verðlaunin. „Myndin fjallar um það hvernig mennirnir eru að sleikja upp auðlindir jarðarinnar og fegurð hennar. Ég bjó til húmoríska viðlíkingu þar sem að manneskja er að sleikja ískúlu sem er jörðin“.

Dómnefnd á vegum Umhverfisstofnunar Evrópu þótti yfirlýsing Írisar djörf og hugvekjandi um neyðarástandið í heiminum. Keppnin kallast Climate Change PIX. Íris er nemandi í Fjölbrautaskólanum við Ármúla, þetta er í annað skipti sem ljósmynd frá þeim skóla vekur athygli á erlendri grundu. 

Áhugasamir geta fljótlega fengið myndina hennar Írisar að láni og hengt hana uppi í stofu hjá sér. Hún verður aðgengileg í Artótekinu, listlánadeild Norræna hússins.

Í verkefninu Ungt umhverfisfréttafólk fjalla nemendur um málefni sem tengjast sjálfbærni á gagnrýninn hátt, koma með hugmyndir að lausnum og miðla þeim með ólíkum leiðum. 455.000 nemendur í 44 löndum taka árlega þátt í verkefninu. Verkefnið var í boði hérlendis í annað sinn sl. vetur og er rekið af Landvernd. Tíu framhaldsskólar og fjórir grunnskólar tóku þátt að þessu sinni, en fjölmargir hópar voru innan hvers skóla.

Í háværri umræðu um loftlagskvíða er ætlunin að verkefnið valdefli ungt fólk og gefi þeim tækifærin til þess að hafa áhrif á umhverfismál. Verkefnið skapar nemendum vettvang til að kynna sér umhverfismál og koma upplýsingum á framfæri á skapandi hátt.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd