Ekki var grundvöllur fyrir leyfisveitingum Umhverfisstofnunar og byggingarfulltrúa Skútustaðahrepps fyrir Fosshóteli við Mývatn. Ákvörðun Skipulagsstofnunar um að ekki þyrfti að umhverfismeta hótelið byggðist ekki á lögmætum grunni. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í tveimur úrskurðum kveðnum upp í dag. Hótelið var opnað um síðustu helgi. Það er á verndarsvæði Mývatns og Laxár. Landvernd mun krefjast tafarlausra aðgerða stjórnvalda í framhaldinu til að tryggja megi ítrustu umhverfisvernd vegna starfsemi hótelsins.
Landvernd krafðist þess í desember í fyrra að felld yrði úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um að hótelið þyrfti ekki í umhverfismat, en bygging þess hófst í óleyfi s.l. sumar. Úrskurðarnefndin féllst í dag á kröfu Landverndar, og ógilti ákvörðunina, þar sem hún væri ekki byggð á lögmætum forsendum. Af því leiðir að ekki er grundvöllur fyrir leyfisveitingum Umhverfisstofnunar og byggingarfulltrúa Skútustaðahrepps.
Haustið 2016 komst í hámæli er byggingarfulltrúi Skútustaðahrepps stöðvaði byggingu hótelsins en búið var að reisa stærstan hluta þess í leyfisleysi. Umhverfisstofnun þarf að veita undanþágur fyrir framkvæmdum á verndarsvæðinu við Mývatn, en hóteleigendur höfðu ekki leitað eftir því. Þá hafði byggingarleyfi ekki verið gefið út. Loks hafði hóteleigandi ekki sinnt lögboðinni skyldu til að leita ákvörðunar Skipulagsstofnunar um hvort umhverfismeta þyrfti hótelið. Leyfi þessi voru síðan gefin út, eftir að bygging hótelsins var vel á veg komin, í nóvember 2016, í kjölfar þess að Skipulagsstofnun hafði úrskurðað að hótelið þyrfti ekki að umhverfismeta. Kærði Landvernd málið í beinu framhaldi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Úrskurðarnefndin hefur nú fellt úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar. Úrskurðarnefndin bendir á að af því leiði að ekki er lengur grundvöllur fyrir leyfisveitingum Umhverfisstofnunar og byggingarfulltrúa Skútustaðahrepps. Nefndin taldi sig hinsvegar ekki hafa lagaheimild til að fella úrskurð um gildi þeirra leyfa og vísaði þeim þætti málsins því frá.
Landvernd fagnar niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar, sem undirstrikar mikilvægi þess að umhverfismeta stórar framkvæmdir sem hafa mengun í för með sér á verndarsvæði Mývatns og Laxár. Hins vegar gagnrýna samtökin að nefndin skuli ekki hafa úrskurðað fyrr í málinu. Þegar er búið að reisa hótelið og rekstur þess er hafinn. Sú háttsemi hóteleigenda að byggja í leyfisleysi og í trássi við lög er og verður algerlega ólíðandi. Landvernd mun þegar í stað leita eftir fundum með viðkomandi stjórnvöldum um þessa nýju stöðu málsins. Jafnfram vonast samtökin til að þetta mál leiði til betri vinnubragða í sambærilegum framkvæmdum í framtíðinni. Einsýnt er að nú fer af stað málsmeðferð um umhverfismat hótelsins og starfsemi þess. Landvernd telur ekki að rekstur þess geti haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist. Gæta verður ítrustu krafna um umhverfisvernd við Mývatn. Samtökin hafa því boðað forstjóra Skipulagsstofnunar, Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra, auk sveitarstjóra Skútustaðahrepps.