Afmælisráðstefna grænfánans!

Afmælisráðstefna 4. febrúar 2022 á vefnum. Rafræn ráðstefna um menntun til sjálfbærni
Menntateymi Landverndar stendur fyrir opinni ráðstefnu um menntun til sjálfbærni á Íslandi. Ráðstefnan verður á rafrænu formi og aðgengileg öllum áhugasömum. Ráðstefnan verður á föstudaginn frá kl. 09:00 – 12:15.
 
Hægt er að smella á myndbandið hér að ofan til þess að fylgjast með henni. Facebook viðburðinn má finna með því að smella hér.
 

Hvernig er dagskráin?

Það er fjölmargt á dagskránni en við ætlum að heyra sögur frá nokkrum grænfánaskólum, ráðherrum, forsetanum og Ungum umhverfissinnum svo fátt eitt sé nefnt. Þá verður uppistand, ný verkefnakista fyrir grænfánaskóla formlega opnuð og farið yfir helstu áfanga grænfánans á Íslandi síðustu 20 árin. 

Á ráðstefnunni verður lögð rík áhersla á getu til aðgerða og valdeflingu nemenda í tengslum við loftslags- og umhverfismál.

Verið hjartanlega velkomin!

Dagskrárliðir

09:00 Andrea Anna Guðjónsdóttir – kynnir dagskrána

09:05 – 09:15 Ráðstefna sett af forseta Íslands Guðna Th. Jóhannessyni

09:15 – 09:30 Örfræðsla í menntun til sjálfbærni – Guðrún Schmidt sérfræðingur í menntun til sjálfbærni

09:30 – 10:00 Tinna Hallgrímsdóttir – formaður Ungra umhverfissinna

10:00 – 10:10 Mennta- og barnamálaráðherra Ásmundur Einar Daðason – mikilvægi menntunar til sjálfbærni – valdefling og raddir nemenda

10:10 – 10:20 Jökull Jónsson – tónlistaratriði

10:20 – 10:35 Skúli Þór Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar og Jón Ágúst Þorsteinsson forstjóri Klappa.

10:35 – 10:40 Kaffipása

10:40 – 11:00 Þar sem hjartað slær – Sigurrós Ingimarsdóttir frá leikskólanum Akraseli segir frá vel heppnuðu grænfánastarfi og tengingu þess við heimsmarkmiðin

11:00 – 11:20 Grænfáninn sem áfangi í framhaldsskólum – Katrín Magnúsdóttir og nemendur hennar úr MS segja frá

11:20 – 11:25 Nemendur á leikskólanum Maríuborg flytja umhverfislagið sitt

11:25 – 11:30 Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra

11:30 – 11:50 Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar – hvað hefur gerst á 20 árum grænfánans á Íslandi? Heiðursverðlaun veitt og opnun nýrrar verkefnakistu.

11:50 – 12:05 Vigdís Hafliðadóttir flytur uppistand

12:05 – 12:15 Kynning á rafrænu vinnustofum vetrarins. Opnar öllum grænfánaskólum.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd