Varðliðar umhverfisins er yfirskrift verkefnasamkeppni grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Keppnin var haldin í fyrsta skipti vorið 2007. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Landvernd og Miðstöð útivistar og útináms standa að keppninni.
„Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.“
Skilafrestur er 21. mars.