Varmárskóli tekur við Grænfánanum á 50 ára afmælinu

Varmárskóli tekur við grænfánanum á 50 ára afmæli skólans.
Varmárskóli tekur við grænfána á 50 ára afmæli skólans.

Í febrúar 2009 gekk Varmárskóli til liðs við verkefnið Skólar á grænni grein, þá hófst markviss vinna við Skrefin sjö. Skemmst er frá því að segja að á 50 ára afmæli skólans var skólanum afhentur Grænfáninn. Varmárskóli er fyrsti skólinn í Mosfellsbæ sem tekur á móti þessari alþjóðlegu viðurkenningu fyrir góða frammistöðu í menntun til sjálfbærrar þróunar og fyrir að leggja sitt af mörkum til þess að efla og bæta umhverfismál innan skólans og nærsamfélagsins. Gerður Magnúsdóttir fulltrúi Landverndar afhenti Guðmundi Ómari Óskarssyni formanni umhverfisnefndar Varmárskóla fánann í fyrsta sinn í blíðskaparveðri að viðstöddu fjölmenni.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd