Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

  • This viðburður has passed.

Aðalfundur Landverndar 2025

23 maí @ 16:00 - 19:00

Aðalfundur Landverndar 2025
Aðalfundur félagsins verður haldinn 23. maí næstkomandi. Við hvetjum alla félaga til að taka daginn frá.
Stjórn Landverndar óskar eftir framboðum í stjórn en ár hvert er kosið í 5 embætti til tveggja ára. Í ár er kosið er í fjögur stjórnarsæti auk formannsembættis.
Kjörgengir í stjórn eru skráðir félagar og fulltrúar félaga og samtaka í Landvernd sem eru skuldlausir við samtökin. Framboð berist á landvernd@landvernd.is fyrir 9. maí 2025.
Ályktunartillögur og tillögur að lagabreytingum skulu berast á landvernd@landvernd.is fyrir 13. maí. Lög Landverndar má finna hér: https://landvernd.is/log-landverndar/

Dagskrá aðalfundar í Tjarnarbíói 23. maí 2025.

 

16.00 Setning fundar. Þorgerður María.

16.05 Ávarp umhverfis, orku og auðlindaráðherra. Jóhann Páll Jóhannsson.

16.20 – Aðalfundarstörf.

·         Kosning fundarstjóra og fundarritara.

·         Kosning í nefndir, kjörnefnd, allsherjarnefnd og laganefnd

·         Skýrsla stjórnar,

·         Kynning ársreiknings og hann lagður fram til samþykktar.

·         Kosning skoðunarmanna reikninga.

16.40 Ný stefna borin upp til samþykktar.

16.55 Lagabreytingar bornar upp til samþykktar og tillaga um árgjald.

17.00 – 17.15 Kaffihlé.

17.15 Niðurstaða úr stjórnarkjöri, Ný stjórn kynnt og stjórnarmenn kvaddir.

17.30 Grænfáninn – menntun til framtíðar.

17.40 Gjörningur í mynd og söng.

17.50 Ályktanir fundarins bornar upp til samþykktar.

18.10 – 18.40 Almennar umræður.

18:40 Viðurkenning Landverndar.

18:50 Fundi slitið, léttar veitingar, snarl og spjall

19.30 Fræðsluganga í kringum Tjörnina, eða á næsta bar, eftir því sem veður og aðstæður leyfa.

Nánar

Dagsetning:
23 maí
Tímasetning:
16:00 - 19:00
Viðburður Category:
Viðburður Tags:
, ,

Skipuleggjandi

Landvernd

Staður

Tjarnarbíó
Tjarnargata 12
Reykjavík, 101
+ Google Map