Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

Bakgarðsgöngur

25 febrúar @ 16:30 - 18:30
Krýsuvík, landvernd.is
Göngum glöð inn í vorið.

Krýsuvík og Bæjarfell

  1. febrúar, kl. 16:30 ()

Lengd göngu: 2.5 km

Hækkun: 120 m

Tími: 1.5 klst

Upphafsstaður: Við Krýsuvíkurkirkju

Leiðarlýsing: Gengið frá Krýsuvíkurkirkju vestur fyrir Bæjarfell og kringum fellið. Ef aðstæður leyfa verður gengið á fellið sjálft sem er ágætur útsýnisstaður. Þaðan blasir við Arnarfell og fjöldi menningarminja, Geitahlíð í austri, Austurengjahæð og Kleifarvatn í norðri, hverasvæðin í Sveifluháls, votlendi og uppblástur í senn, og fram á Krýsuvíkurberg í suðurátt.

Gangan er liður í röð gönguferða í Reykjanesfólkvang sem Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands standa fyrir. Tilefnið er 50 ára afmæli fólkvangsins og vekja athygli á tilgangi hans og þeim útivistarkostum sem fólkvangurinn geymir. Jafnframt að kynna þetta fjölbreytta og t.t. lítt raskaða svæði suður af Kleifarvatni – heillega landslagsheild, sérstæðar jarðminjar, búsetusögu allt frá landnámi og greinilegar menningarminjar – steinsnar frá höfuðborgarsvæðinu.

———————
Bakgarðsgöngur Landverndar eru gerðar til þess að tengjast náttúrunni okkar betur og gefa fólki tækifæri á að líta á nærumhverfið sitt öðrum augum.
Við fáum gott leiðsögufólk sem tekur hópinn með sér í létta gönguferð og fræðir okkur um náttúru svæðisins, flóru, sögu, áform á svæðinu eða annað áhugavert.
Göngurnar verða haldnar hálfsmánaðarlega og varð þessi tímasetning fyrir valinu með fjölbreytt fólk í huga. Öll velkomin og vonumst við til að sjá sem flest í þessari skemmtilegu runu.
Gerið going á þennan viðburð á Facebook svo þið getið fylgst með breytingum og deilið endilega með vinum og vandamönnum.

Nánar

  • Dagsetning: 25 febrúar
  • Tímasetning:
    16:30 - 18:30

Staður

  • krýsuvik