Bakgarðsgöngur -Ástjörn
4 mars @ 17:00 - 18:30

Göngum glöð inn í vorið.
Upphafstaður verður við Skarðshlíðaskóla á Völlunum. Leiðsögumaður er Sebastían Oddný en hann mun fara með okkur um þetta áhugaverða svæði
Hvað gerist þegar uppbygging gleymir að taka tillit til breytilegrar náttúru? Getum við snúið við eða lært að aðlagast henni aftur?
Við Ástjörn er gríðarleg uppbygging á gömlu hrauni sem skapar meðal annars flóðvanda þegar vatnsveitan hefur ekki undan. Allskonar lífríki er í hættu þegar við byggjum hratt og mikið en þarna er margt áhugavert að sjá.
———————
Bakgarðsgöngur Landverndar eru gerðar til þess að tengjast náttúrunni okkar betur og gefa fólki tækifæri á að líta á nærumhverfið sitt öðrum augum.
Við fáum gott leiðsögufólk sem tekur hópinn með sér í létta gönguferð og fræðir okkur um náttúru svæðisins, flóru, sögu, áform á svæðinu eða annað áhugavert.
Göngurnar verða haldnar hálfsmánaðarlega og varð þessi tímasetning fyrir valinu með fjölbreytt fólk í huga. Öll velkomin og vonumst við til að sjá sem flest í þessari skemmtilegu runu.
Gerið going á þennan viðburð á Facebook svo þið getið fylgst með breytingum og deilið endilega með vinum og vandamönnum.