
- This viðburður has passed.
Fræðsluganga í Heiðmörk
26 maí @ 18:00 - 20:00

Lagt verður af stað frá Elliðavatnsbænum kl. 18:00, mánudaginn 26. maí.
Gangan tekur um tvo tíma og endar á sama stað.
Gangan tekur um tvo tíma og endar á sama stað.
Viðburðurinn er í boði Landverndar, Ferðafélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur.
Gott aðgengi almennings að grænum svæðum hefur ómetanlegt gildi fyrir lýðheilsu og samfélag. Almannarétturinn tryggir fólki náttúruupplifun, en þekking á náttúrunni styður jafnframt við náttúruvernd.
Verðmæti í húfi
Heiðmörk er stærsta og fjölsóttasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Þar gefst gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttri náttúru – plöntum, dýralífi, vötnum og jarðmyndunum – í skjólgóðu og aðgengilegu umhverfi rétt við borgarmörkin.
Áform eru uppi um að takmarka aðgengi að svæðinu, enda þar vatnsból borgarinnar. Samtökin sem standa að göngunni treysta því að unnt verði að samræma nauðsynlega vernd vatnsbóla og almannarétt um frjálsa för um Heiðmörk – í anda sjálfbærni og lýðræðis. Slíkt hefur tekist annars staðar og getur líka tekist hér.
Gengið verður að þeim svæðum í Heiðmörk sem fyrirhugað er að girða af og loka. Í göngunni verður rætt um þau verðmæti sem í húfi eru.