Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

Græna Gangan

23 apríl @ 13:00 - 15:00

Sumardagurinn fyrsti 2026 verður tileinkaður náttúru Íslands á allan hátt!

Þetta verður baráttudagur náttúrunnar sem byrjar með öflugri grænni göngu í anda kröfugöngunnar miklu 2013. Við viljum að allir landsbúar sem komast láti sig ekki vanta og gangi með okkur í miðbænum með græna fána á lofti.

Fólk safnast saman við Hallgrímskirkju kukkan 13:00 og við byrjum að ganga niður á Austurvöll klukkan 13:30. á Austurvelli tekur á móti okkur hvatning til þess að halda náttúrunni okkar sem hæst á lofti í öllum málum því hún á undir högg að sækja og hún þarf fleiri raddir.

Við viljum að rödd náttúrunnar heyrist yfir holt og hæðir þennan dag og blási lífi í náttúruverndina á Íslandi inn í sumarið

 

Þetta er dagurinn sem allir ættu að taka frá!
Dagurinn sem við göngum fyrir náttúruna og framtíðina.

 

Nánar

  • Dagsetning: 23 apríl
  • Tímasetning:
    13:00 - 15:00

Staður

  • hallgrímskirkja
  • Hallgrímstorg 1
    Reykjavík, 101
    + Google Map