Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

  • This viðburður has passed.

Hvert stefna flokkarnir í umhverfismálum?

23 nóvember @ 14:00 - 16:00

FRÍTT INN

Landvernd, Ungir umhverfissinnar, auk fleiri náttúruverndarsamtaka, bjóða formönnum flokkanna til sín að ræða stefnur flokka í umhverfis- og loftslagsmálum.

Verndun loftslags og náttúru eru mikilvægustu málefni samtímans, við eigum allt okkar undir heilbrigðum hringrásarkerfum jarðarinnar. Loftslagsbreytingar og hnignun vistkerfa hafa þegar mikil áhrif á líf okkar allra!

Fulltrúar flokkanna taka þátt í pallborði og ræða stefnur sínar og Ungir Umhverfissinnar mæta með einkunnagjöf Sólarinnar, þar sem gefin eru stig fyrir umhverfis- og loftslagsmál í stefnum allra stjórnmálaflokka. Stigagjöfin sýnir styrkleika og veikleika og stöðu flokkanna.

📍 Fundurinn fer fram laugardaginn 23. nóvember, kl. 14:00 í sal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8. Fundinum verður streymt.

Átta flokkar hafa staðfest fulltrúa fyrir sína hönd:
– Sjálfstæðisflokkur: Guðlaugur Þór Þórðarson
– Vinstri græn: Svandís Svavarsdóttir
– Viðreisn: Aðalsteinn Leifsson
– Píratar: Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
– Sósíalistaflokkurinn: Sanna Magdalena Mörtudóttir
– Framsókn: Halla Hrund Logadóttir
– Miðflokkurinn: Bergþór Ólason
– Samfylkingin: Þórunn Sveinbjarnardóttir
– Lýðræðisflokkurinn: Arnar Þór Jónsson

///

Dagskrá fundar:

Ljóti kór, söngur.

Kynning, Guðmundur Steingrímsson, formaður Landverndar stýrir.

Pallborð með frambjóðendum. Með umræðustjórn fara Stefán Jón Hafstein og Björg Eva Erlendsdóttir.

Sólin. Snorri Hallgrímsson, forseti Ungra umhverfissinna, afhendir flokkunum Sólarstig.

Nánar

Dagsetning:
23 nóvember
Tímasetning:
14:00 - 16:00
Verð:
FRÍTT INN
Viðburður Category:

Skipuleggjendur

Landvernd
Ungir Umhverfissinnar
Landvernd
Náttúruverndarsamtök Islands
Fuglavernd

Staður

Islensk Erfðagreining
Sturlugata 8
Reykjavík, 102
+ Google Map