- This viðburður has passed.
Kynslóð eftir kynslóð: Spjall um nægjusemi
13 nóvember @ 20:00 - 21:00
Miðvikudagskvöldið 13. nóvember standa Landvernd og Grænfáninn, í samstarfi við Saman gegn sóun, fyrir kynslóðaspjalli í Hannesarholti, frá kl. 20-21. Þar ræða fulltrúar þriggja kynslóða um nægjusemi og ýmsar hugleiðingar tengdar henni. Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimpsekingur, leiðir spjallið.
Hvað þýðir nægjusemi í dag? Getur nægjusemi stuðlað að aukinni hamingju og frelsi? Hvernig líta ólíkar kynslóðir á nægjusemi?
Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimpsekingur, mun leiða spjall á milli fulltrúa þriggja ólíkra kynslóða þar sem þessum og fleiri spurningum og hugleiðingum verður velt upp. Áheyrendum býðst síðan að taka virkan þátt, með spurningum og eigin skoðunum og upplifunum.
Viðburðurinn er hluti af hvatningarátaki Landverndar og Grænfánaverkefnis undir heitinu Nægjusamur nóvember. Markmiðið er að upphefja nægjusemi sem jákvætt skref fyrir okkur sem einstaklinga og samfélag til þess að stuðla að góðu og heilbrigðu lífi og minnka um leið vistsporið okkar. Nóvember er einn neysluríkasti mánuður ársins og áhersla á nægjusemi er mótsvar við neysluhyggju og hugmyndinni um að okkur vanti stöðugt eitthvað.
Tökum virkan þátt í að endurstilla neyslumenningu okkar, náttúrunni og okkur til bóta. Við hlökkum til að sjá sem flest!
Nánari upplýsingar um átakið má finna hér.