Náttúrubókajól
11 desember @ 17:00 - 18:00

Við Íslendingar erum svo heppin með alla þá frábæru rithöfunda sem við eigum og þér er boðið á bókaupplestur af bestu gerð!!!
Við fáum náttúruvininn og stórskáldið Andra Snæ Magnason til þess að ræða við okkur. Hann hefur lengi talað opinberlega um umhverfismál af hreinustu snilld og gaf nýverið út nýju bókina “Jötunsteinn”.
Einnig fáum við þann heiður að hlýða á Nínu Ólafsdóttur en hún gaf út sína fyrstu bók í ár sem hefur slegið rækilega í gegn. Bókin heitir “Þú sem ert á jörðu” og fjallar um einstakling sem ferðast um hin ýmsu vistkerfi.
Við erum svo ógurlega spennt fyrir því að hitta á þetta frábæra fólk og bjóðum ykkur að koma með!
Notaleg lestrarstund í Húsin Máls og menningar á Laugarveginum frá klukkan 17-18. Ekki láta þig vanta 