
- This viðburður has passed.
Sáningarvaka í Alviðru
10 maí @ 14:00 - 16:00

Sáningarvaka í Alviðru, laugardaginn 10. maí
Samverustund með Auði I. Ottesen garðyrkjufræðingi verður í Alviðru – fræðslusetri Landverndar – laugardaginn, 10. maí, frá kl. 14-16. Þessi maífræðsla er ætluð þeim sem vilja ná árangri í matjurtarækt og njóta ríkulegrar uppskeru garðvinnunnar.
Auður hefur umsjón með grenndargörðunum í Alviðru og mun kynna ræktunarmöguleika þar. Allir félagar í Landvernd eiga kost á að rækta eigið grænmeti í grenndargarðinum. Auður fræðir um forræktun, hvaða tegundum megi sá beint út í beð og um mismunandi ræktunaraðferðir. Ráðlagt verður með áburðargjöf og lífrænar lausnir gegn vágestum og plöntusjúkdómum. Kynntar verða fjölmargar tegundir krydd- og matjurta.
Þau, sem áhuga hafa á að rækta í grenndargarðinum, geta skráð sig til þátttöku á sáningarvökunni.
Til fjáröflunnar gerð kryddspírala í grenndargarðinum verður selt kaffi og með því. Einnig verða til sölu kryddjurtir og forræktað grænmeti.
Alviðra er náttúruverndar- og fræðslustofnun Landverndar staðsett undir Ingólfsfjalli vestan við Sogið, um 10 km. frá Selfossi við Biskupstungubraut.