Vorgöngur – Geitahlíð
11 mars @ 17:30 - 19:00

Dags: 11. mars 2026, kl. 17:30
Geitahlíð: Eldborg – Æsubúðir
Lengd göngu: 2.5 km
Hækkun: u.þ.b. 250 m
Tími: 2 klst
Upphafsstaður: Bílastæði við Eldborg undir Geitahlíð (N63° 21.945″ W21° 59′ 54.883″, Kalmansbraut)
https://maps.app.goo.gl/mYEad3X5wwLUeSQf8
https://maps.app.goo.gl/mYEad3X5wwLUeSQf8
Leiðarlýsing: Gangan hefst við náttúruvættið Eldborg undir Geitahlíð. Við göngum á barm gígsins sem margir telja þann fegursta af mörgum á suðvestur horninu. Þaðan er á brattann að sækja í Æsubúbúðir (380 m) í Geitahlíð sem er annar gígur efst á fjallinu. Við göngum hringinn í kringum gíginn en óvíða er betra útsýni á Reykjanesi á góðum degi yfir suðurströndina, í átt til Brennisteinsfjalla, yfir Kleifarvatn og Sveifluháls.
Gangan er liður í röð gönguferða í Reykjanesfólkvang sem Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands standa fyrir. Tilefnið er 50 ára afmæli fólkvangsins og vekja athygli á tilgangi hans og þeim útivistarkostum sem fólkvangurinn geymir. Jafnframt að kynna þetta fjölbreytta og t.t. lítt raskaða svæði suður af Kleifarvatni – heillega landslagsheild, sérstæðar jarðminjar, búsetusögu allt frá landnámi og greinilegar menningarminjar – steinsnar frá höfuðborgarsvæðinu.