Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

  • This viðburður has passed.

Vorgöngur- Ketilstígur

25 mars @ 17:00 - 19:30

Ketilstígur: Seltún – Arnarvatn

Lengd göngu: 4.5 km

Hækkun: u.þ.b. 100 m

Tími: 2.5 klst

Upphafsstaður: Bílastæði við Seltún ( maps staðsetning )

Leiðarlýsing: Gangan hefst við Seltún. Við göngum Ketilstíg í norður, upp á Sveifluháls og að Arnarvatni þar sem áum. Þaðan höldum við í vestur átt að Hatti og Hettu áður við beygjum í suður og fetum okkur í gegn um Baðstofuna eða hversvæðin austan í hálsinum. Á leiðinni liggur beinast við að ræða þjóðleiðirnar frá Hafnarfirði í verbúðirnar við suðurströndina. En einnig stór hugmyndir í aldanna rás um ýmiskonar iðnað í Krýsuvík, allt frá brennisteinsvinnslu, kúabúi og síðari tíma hugmyndir um orkuvinnslu, græna iðngarða og líftækniiðnað. Og auðvitað náttúruvernd á Reykjanesi.  

Gangan er liður í röð gönguferða í Reykjanesfólkvang sem Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands standa fyrir. Tilefnið er 50 ára afmæli fólkvangsins og vekja athygli á tilgangi hans og þeim útivistarkostum sem fólkvangurinn geymir. Jafnframt að kynna þetta fjölbreytta og t.t. lítt raskaða svæði suður af Kleifarvatni – heillega landslagsheild, sérstæðar jarðminjar, búsetusögu allt frá landnámi og greinilegar menningarminjar – steinsnar frá höfuðborgarsvæðinu. 

Nánar

  • Dagsetning: 25 mars
  • Tímasetning:
    17:00 - 19:30