Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

Wingspan mót Landverndar og Fuglaverndar

19 mars @ 19:30

Það sem MÖRG hafa beðið eftir! Wingspan mót Landverndar og Fuglaverndar hefur snúið aftur.

Allt fugla- og spilafólk er hjartanlega velkomið á kvöldið á Loft Hostel á Bankastræti 7, 101 Reykjavík. Takið með ykkur góðan spilafélaga, fáið ykkur heitan eða kaldan drykk á barnum því það er kominn tími á fugladansinn!

Athugið að það þarf ekki að kunna spilin til að mæta. Spilasérfræðingar verða á svæðinu frá báðum samtökum og leiða þá sem vilja í gegnum spilin.

Húsið fyllist alltaf og því mælum við með að þú skráir þig hér sem fyrst

Við tökum einstaklega vel á móti nýjum félögum í Landvernd eða Fuglavernd en þú skráir þig sem félagi hér :

Gerast félagi í landvernd

Gerast félagi í fuglavernd

Nánar