Sumardagskrá SJÁ 2026
Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd (Sjá) eru deild í Landvernd.
Markmiðin eru þau sömu í 40 ár, frá stofnun 1986 – að gefa fólki tækifæri til að vinna að náttúruvernd.
Þriðjudagskvöld 9. júní: Skógrækt með skógræktarfélaginu á Akranesi. Hafið samband við
Grétar í s. 897 3136. Mæting við Strætó/Nettó í Mjódd kl. 18 (safnast í bíla) eða á Akranesi kl. 19.
Kaffiveitingar og spjall við lok vinnu, í boði Skógræktarfélagsins á Akranesi.
Föstudag 12. júní. Vinna og umhverfisfræðsla í Alviðru í Ölfusi, í samvinnu við Alviðrunefnd Landverndar
og Tryggva Felixson, formann hennar. Í þetta sinn að takmarka útbreiðslu lúpínu. Vinnum með erlendum
sjálfboðaliðum frá Seeds-samtökunum. Mæting í Alviðru kl.10:30, sjálfsagt að sameinast í bíla.
Mánudagskvöld 15. júní kl. 19 – 22. Lúpínuhreinsun á Vogastapa, til að verja fornu Stapagötuna. Árlegur
viðburður, í samvinnu við heimafólk í Vogum og Njarðvík. Hressing í lokin, undir berum himni, með útsýni
af Stapanum. Umsjón: Þorvaldur Örn, s.895 6841. Hér er skýrsla um vinnu á Vogastapa fyrir nokkrum árum.
Fleiri vinnukvöld á Vogastapa tilkynnt síðar. Mæting á Vogastapa, Vogamegin.
Fimmtud. 18. júní. Lúpínuvinna við Bleikhól við Kleifarvatn. Umsjón Örn Þorvaldsson.
Laugardag 20. júní: Árleg lúpínuhringferð um Reykjanesfólkvang. Falleg leið með leiðsögn, m.a.
Vigdísarvallaleið. Mæting við N1 í Hafnarfirði kl. 9 eða í Seltún í Krýsuvík kl. 10.
Framhald á vinnu sl. 11 ára, sjá skýrslu hér (vantar síðustu árin).
Umsjón: Þorvaldur Örn (s.895 6841) og Örn Þorvaldsson.
Laugardag 27. júní Slíta og slá lúpínu á Syðri-Stapa og við Hellur við Kleifarvatn, m.a. tilraun með
langlífi lúpínufræs.
Söfnust saman í bíla við N1 í Hafnarfirði kl. 10. Umsjón Örn og Þorvaldur.
Laugardag 4. júlí – (e.t.v. sunnudag líka): Lúpínuhreinsunarferð í Skorradal. Þar komum við í veg fyrir að
lúpína hylji forna þjóðleið, Síldarmannagötur, í samstarfi við heimafólk. Lítum einnig á rannsókn á lifun
lúpínufræs í jarðvegi sem sett var af stað 2020. Hulda á Fitjum býður jafnan í kvöldmat og jafnvel gistingu á
Fitjum. Umsjón: Hulda, og Þorvaldur s.895 6841. Hittumst hjá Nettó /Strætó í Mjódd að laugardagsmorgni
kl. 9 og sameinumst í bíla.
Nánari tilhögun og önnur verkefni kynnt á fb-síðu SJÁLFBOÐALIÐASAMTÖK UM NÁTTÚRUVERND


