Yfirlýsing: Við stöndum með velferð dýra

Það stenst ekki nútímann ef lög eru ekki nógu skýr til að stjórnvöldum sé fært að grípa til viðeigandi ráðstafana í þágu dýravelferðar.
Landvernd, ásamt sex umhverfis- og dýraverndarsamtökum, kallar eftir því að Alþingi breyti lögum svo ráðherra geti gripið til viðeigandi ráðstafana, komi í ljós að hvalveiðar fari í bága við lög um velferð dýra.

Yfirlýsing: Við stöndum með velferð dýra

Samkvæmt áliti umboðsmanns hefur velferð dýra ekki nægilegt vægi til að hægt sé að rökstyðja frestun hvalveiða með nægilega skýrum hætti á grundvelli laga um hvalveiðar. 

Matvælaráðherra frestaði hvalveiðitímabili í júní s.l. og tók þar með afstöðu með velferð dýra. Í ljósi skýrslu Matvælastofnunar, álits Fagráðs um velferð dýra og yfirlýsingu Dýralæknafélags Íslands bar ráðherra að bregðast við. 

Það stenst ekki nútímann ef lög eru ekki nógu skýr til að stjórnvöldum sé fært að grípa til viðeigandi ráðstafana í þágu dýravelferðar. Þess vegna köllum við, undirrituð, eftir því að Alþingi breyti lögum á þann hátt að ráðherra hafi heimild til að grípa til viðeigandi ráðstafana komi í ljós að veiðarnar fara í bága við lög um velferð dýra.

Lögin í landinu endurspegla siðferði okkar sem samfélags, til þess eru lögin gerð og hér er augljóslega misræmi milli siðferðislegra gilda meirihluta almennings og laga.

Dýraverndunarsamband Íslands
Hvalavinir
Landvernd
Náttúruverndarsamtök Ísland
Samtök grænkera á Íslandi
Samtök um dýravelferð á Íslandi
Ungir umhverfissinnar

Ofangreind fréttatilkynning var send fjölmiðlum 18. janúar 2024.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd