ji_frontimage4.jpg
Vistvernd
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Fréttabréf
Um verkefnið
Hvað er Vistvernd í verki?
Skrifstofa Vistverndar í verki
Þátttökusveitarfélög
Árangur
Fyrir sveitarfélög
Fyrir leiðbeinendur
Sýning
Fróðlegt efni
Vistvæn ráð
Allt um jólin
Spurningar og svör
Greinar
Viðtöl
Vistvænar gjafir
Börnin smá og stór

Vistverndarfólk rifjar upp leiðbeinendatakta
28. september 2009 - Vistvernd í verki
Við hjá Vistvernd í verki höfum mikinn hug á að halda uppi öflugu visthópastarfi. Fjöldi fólks er nú á biðlista eftir að komast í visthóp og vantar okkur því leiðbeinendur. Sumir hafa kvartað yfir því að vera farnir að ryðga í fræðunum. Til að ráða bót á því höfum við því ákveðið að bjóða upp á örnámskeið og spjall fyrir leiðbeinendur Vistverndar í verki mánudaginn 5. október kl. 20.00 hjá Sirru í Farfuglaheimilinu í Laugardal.
Bryndís Þórisdóttir, áður verkefnisstjóri hjá Vistvernd í verki, stýrir spjallinu og rifjar upp fræðin.
nánar ->
Skrá netfang
fjarlægja netfang

Falleg gjafakort fyrir vistvænar gjafir. Gefandinn fyllir út kortið sjálfur. Er nokkuð dýrmætara en tíminn okkar og samverustundir? Gefum nuddtíma, barnapössun eða annað sem inniheldur meira af tíma en efni. Hér er fjársjóður hugmynda. Hægt er að panta 10 stk. á 500 kr.
Vefurinn er bráðsniðugur fyrir þá sem vilja finna sér far á milli bæjarfélaga á Íslandi eða fá ferðafélaga með sér í bílinn og minnka þannig bensínkostnað og mengun. Einn af dásamlegum möguleikum netsins! Notum samferda.net og leggjum þannig okkar af mörkum til að spara auðlindir og minnka mengun. Og spörum peninga um leið!
Á skrifstofu Landverndar, Skógræktarfélags Íslands, Fuglaverndar og Landgræðslusjóðs á 2. hæð í Skúlatúni 6 í Reykjavík hefur verið reynt að skipuleggja starfsemina með hliðsjón af umhverfismálum. Kannski geta aðrir nýtt sér hugmyndir sam fram koma í áætlun okkar. Ef þið takið skrifstofuhaldið í gegn í kjölfar lesningarinnar megið þið gjarnan láta okkura vita.
Grænn aðgerðalisti skrifstofunnar - word skjal
25. apríl ár hvert er haldinn hátíðlegur Dagur umhverfisins á Íslandi. Ýmsir fleiri dagar og viðburðir tengdir umhverfismálum eru haldnir árlega m.a. af tilstuðlan Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og félagasamtaka. Til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í viðburðunum yfirsýn og undirbúning hefur hér verið tekinn saman listi yfir helstu daga og viðburði en viðbætur og leiðréttingar eru vel þegnar.
izle

oyun

oyun

video

pes

youtube

bedava izle

izle

oyun

oyun
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: vistvernd@landvernd.is