![Vindorkuver eiga ekki heima hvar sem er. Vissara er að taka vindorku inn í rammaáætlun.](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2020/11/Vindorkuver-eiga-ekki-heima-hvar-sem-er-robert-eklund.jpg)
Vindorkuver ættu að bíða niðurstöðu rammaáætlunar
Umhverfisáhrif Vindorkuvera geta verið mjög mikil. Í tilviki fyrirhugaðs vindorkuvers á Mosfellsheiði er um að ræða gríðarmikið jarðrask og efnistöku, sjónmengun og neikvæð áhrif á landslagsheildir og hættu fyrir fuglalíf. Inn í tillögu að matsáætlun vantar áætlun um mat á áhrifum á ferðaþjónustu og útivist.