Landvernd tekur heilshugar undir þá niðurstöðu verkefnisstjórnar rammaáætlunar að friða Héraðsvötn fyrir virkjunum, enda er vatnasvið þeirra afar verðmætt. Landvernd fagnar sömuleiðis áformum um að falla frá Kjalölduveitu sem hefði ógnað sjálfum Þjórsárverum.
Virkjanaáform við Þjórsá
Það er niðurstaða Landverndar að staðan vegna virkjanaáforma í byggð við Þjórsá sé óbreytt, eftir síðasta snúning í endurskoðun faghópa rammaáætlunar.
Faghópar fengu mjög afmarkað verkefni að bæta fyrir áður óunna vinnu. Þeir komust að því að fjárhagsávinningur væri af neðri virkjunum tveimur. Þeir komust að því að virkjanirnar þrjár eru umdeildar, en að sveitarstjórnir eru spenntar fyrir þeim fái þær nægan efnahagslegan ávinning.
Landvernd telur að sveitastjórnir geti ekki veitt framkvæmdaleyfi ef þær hafi af framkvæmdunum töluverðan fjárhagslegan ávinning. Síðan hefur virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar verið fellt úr gildi eftir kæru á grundvelli vatnastilskipunar. Sú tilskipun hlýtur að eiga við neðri virkjanirnar líka.
Ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að hinn ónefndi sveitamaður sem vitnað er til hér að ofan, fái ósk sína uppfyllta til hvers fórnarkostnaðurinn er. Hvernig mun samfélagið við Þjórsá njóta hans, munu virkjanir í Þjórsá þjóna orkuskiptunum eða fer straumurinn allur inn á kerfið til ýmissa nota í nýja stóriðju og gagnaver?
Á meðan 80 prósent orkunnar fara til stórnotenda á sérkjörum og orkan úr Þjórsá gæti farið sömu leið verður andstaðan við virkjanirnar illvíg. Fórnarkostnaður er mikill og ávinningur óljós. Í þeim málum þar sem verndargildi náttúrunnar er endurmetið vill Landvernd koma því á framfæri að málefnalegar forsendur náttúruverndar í öllum heiminum hafa um langan tíma styrkst ár frá ári. Því var þessi endurskoðun fyrst og fremst pólitískt leikrit og sóun á tíma og fjármunum.