Víðerni og óspillt náttúra Íslands er einstök á heimsmælikvarða og okkur ber skylda að vernda hana, landvernd.is

Umsögn um nýtt náttúruverndarfrumvarp 2012

Umsögn um nýtt náttúruverndarfrumvarp.

Þann 25.september síðastliðinn skilaði Landvernd inn umsögn sinni til Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins varðandi drög að frumvarpi til laga um náttúruvernd. Umhverfisráðherra skipaði nefnd árið 2009 til að fara yfir núgildandi náttúruverndarlög og gera á þeim breytingar sem birtar voru í Hvítbók árið 2011. Þó nokkur nýmæli eru í lögunum sem Landvernd fagnar sérstaklega og telur vera mikið framfaraskref en auk þess eru lögin heilsteyptari en áður hefur þekkst í löggjöf um náttúruverndarmál.

Þrátt fyrir að gera athugasemdir við einstaka kafla er Landvernd á heildina litið sátt með þessa tillögu en í viðhengi má nálgast þær athugasemdir sem Landvernd gerði við frumvarpið í september.

Á næstu dögum eða vikum verður frumvarpið lagt fyrir Alþingi til atkvæðagreiðslu.

Lesa umsögn Landverndar

Sorry, we couldn't find any posts. Please try a different search.

Sorry, we couldn't find any posts. Please try a different search.

Svona hefur Landvernd áhrif

Landvernd hefur áhrif á stefnumótun og ákvarðanatöku í umhverfismálum með því að skrifa umsagnir, álykta um málefni tengd umhverfisvernd og náttúruvernd. Landvernd krefst þess að farið sé að lögum og hefur látið reyna á nokkur mál fyrir dómi.

Náttúruvernd er loftslagsvernd

Félagar í Landvernd láta sig náttúruna varða. Vertu með í Landvernd og hafðu áhrif.