xx

Starfshópur um vindorkuver

Stjórn Landverndar bendir á að samtökin hafa mikið látið sig mögulega uppbyggingu vindorkuvera varða á undanförnum árum og kallað eftir skýru regluverki í kringum hana. Eins og fram hefur komið telur stjórn Landverndar að virkjanakostir í vindorku eigi að heyra undir lög 48/2011 um vernd og orkunýtingu landssvæða enda er um óafturkræfa orkunýtingu landssvæða að ræða þar sem vindorkuverin ná yfir stór landssvæði með tilheyrandi óafturkræfum umhverfisáhrifum á fugla, gróður, jarðmyndanir og landslag, auk margskonar mengunaráhrifa. Stjórn Landverndar vill einnig benda á umsagnir sínar um einstök vindorkuver, bæði í tengslum við ferli um mat á umhverfisáhrifum og skipulagsbreytingar einstakra sveitafélaga sem eru aðgengilegar á heimasíðu Landverndar.

Sorry, we couldn't find any posts. Please try a different search.

Sorry, we couldn't find any posts. Please try a different search.

Svona hefur Landvernd áhrif

Landvernd hefur áhrif á stefnumótun og ákvarðanatöku í umhverfismálum með því að skrifa umsagnir, álykta um málefni tengd umhverfisvernd og náttúruvernd. Landvernd krefst þess að farið sé að lögum og hefur látið reyna á nokkur mál fyrir dómi.

Náttúruvernd er loftslagsvernd

Félagar í Landvernd láta sig náttúruna varða. Vertu með í Landvernd og hafðu áhrif.