Aðalfundur Landverndar 2023
Stjórn Landverndar boðar til aðalfundar samtakanna kl. 17:00 miðvikudaginn 19. apríl í Lækjargötu 2 (3. og 4.hæð) í Reykjavík (áður Tunglið). Aðgengi er gott fyrir fólk með hreyfihömlun.
Fundargestir eru beðnir að skrá sig fyrirfram.
Framboð til stjórnar
Í stjórn Landverndar sitja 10 manns. Á aðalfundi 2023 verður kosið um fjóra stjórnarmenn, auk formanns.
Allir kjörgengir félagsmenn geta boðið sig fram. Framboðsfresti lýkur 5. apríl og kynning á frambjóðendum er áformuð 14. apríl. Kosning verður rafræn á tímabilinu 15. – 19. apríl og lýkur á aðalfundinum sjálfum.
Ályktanir
Samkvæmt lögum Landverndar skulu tillögur að ályktunum sem leggja á fyrir aðalfund að berast tímanlega og þær ber að kynna fyrir félögum. Fresti til að skila tillögum að ályktunum lauk 9. apríl.
Dagskrá aðalfundar Landverndar
16:30 Húsið opnað
17:00 Setning fundarins, aðalfundarstörf
- Kosning í nefndir fundarins, kjörnefnd og allsherjarnefnd
- Skýrsla stjórnar
- Kynning ársreiknings og hann lagður fram til samþykktar
- Kosning endurskoðanda og skoðunarmanna reikninga
17:35 Hugvekja, Auður Ava Ólafsdóttir rithöfundur
17:55 Niðurstöður kjörs stjórnar og formanns kynntar
18:00 Kynning ályktana
18:15 Kvöldverður og umræður um ályktanir
19:00 Ályktanir aðalfundar – niðurstöður umræðna kynntar og kosning
19:45 Kjör heiðursfélaga Landverndar og ávarp heiðursfélaga
20:00 Önnur mál
20:15 Aðalfundi slitið og boðið upp á léttar veitingar