Alviðra, athvarf í náttúrunni fyrir nemendur og kennara

Alviðra er sannkölluð útivistarparadís!

Vorið nálagast og Alviðra opnar faðm sinn fyrir nemendur og kennara, og aðra hópa sem vilja njóta útiveru, frá 14. maí til 6. júní, og svo aftur að afloknu sumri 16. september til 16. október 2026 Nú er rétti tíminn til að bóka. Senda má skilaboð á netfangið alvidra@landvernd.is. Vinsamlegast tilgreinið óskaðan tíma, fjölda og aldur nemenda og hvaða námsefni (vatn, gróður, fuglar, jarðfræði, ræktun) er þörf á að taka fyrir í skóla náttúrunnar. Með góðum fyrirvara gætum við virkjað sjálfboðaliða til að aðstoða kennara.

Alviðra var bújörð og er nú fræðslusetur við Sogið rétt hjá Þrastarlundi um 10 km. frá Selfossi. Aðstaða er góð í lítilli kennslustofu í bænum. Dagsdvöl í Alviðru býður upp á fjölbreytta náttúru til að njóta og skoða. Hlíðar Ingólfsfjalls eru góð uppspretta fræðslu um jarðfræði og Sogið um lífið í vatninu og heimkynni fugla. Öndverðarnesið liggur á austurbakka Sogsins er umvafið náttúrulegum birkiskógi og þar liggur gönguleið að mótum lindárinnar Soginu og jökulárinnar Hvítá. Blómskrúðer mikið og gróður fjölbreyttur til að njóta og greina þegar sumarið gengur í garð. Uppstoppaðirfuglar, tæki og handbækur eru á staðnum til að styðja kennsluna. Viðfangsefni sem passa mismunandi aldursskeiðum og efla börn til skilnings á náttúrunni.

Gjald fyrir dags heimsókn er 30.000 kr. fyrir allt að 25 manna hóp, en hækkar ef hópurinn er fjölmennari. Aðgangur er að eldhúsi. Gistiaðstaða fyrir allt að 20 manns í svefnsal er möguleg frá 16. september og kostar 2.000 kr. á mann.

alviðra
mynd úr fræðslustarfi

Alviðra undir Ingólfsfjalli við Sogið, skóli náttúrunnar

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd