Áskorun á ráðherra frá stjórn Landverndar

Stjórn Landverndar skorar á Sjávarútvegs- og Landbúnaðarráðherra og Umhverfis- og auðlindaráðherra að virða niðurstöðu úrskurðanefndarinnar og láta af áætlunum um lagasetningar sem snúa úrskurði hennar.

Stjórn Landverndar telur það mjög alvarlegt fyrir íslenska stjórnsýslu í umhverfisverndarmálum sem fyrir er mjög veik, að ráðherra skuli hlutast til um úrskurði úrskurðanefndar í umhverfis- og auðlindamálum. Það er ákvörðun og áhætta fyrirtækja að hefja starfsemi þrátt fyrir augljósa ágalla á henni sem varða við landslög, eins og það að kostagreining fór ekki fram. Réttur umhverfisverndarsamtaka til þess að láta reyna á framkvæmda- og starfsleyfi fyrir starfsemi sem hefur skaðlegar afleiðingar fyrir umhverfið fyrir óháðum aðila er lítils virði þegar ráðherrar setja lög á úrskurði þessa óháða aðila. Stjórn Landverndar skorar á Sjávarútvegs- og Landbúnaðarráðherra og Umhverfis- og auðlindaráðherra að virða niðurstöðu úrskurðanefndarinnar og láta af áætlunum um lagasetningar sem snúa úrskurði hennar.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd